Baltisdalur |
Baltisdalur er 6800 km löng og milli eins til þriggja km breið og allt að tíu metra djúp hrauntröð á Venusi; nefndur eftir sýrlenska orðinu yfir Venus. Hrauntröðin er þar með örlítið lengri en Nílarfljót (lengsta fljót jarðar) og lengsti þekkti farvegur sólkerfisins. Talið er að hraun hafi runnið um farveginn frá ónefndu 150 km breiðu eldfjalli og skilið eftir sig þessa geysilöngu hrauntröð.

