Athugaðu, opna í nýjum glugga. Prenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

 

Ishtar Terra

Ishtar Terra er annað tveggja meginhálendissvæða á Venusi, á norðurhveli reikistjörnunnar nánar tiltekið (um það bil á þeirri breiddargráðu sem Ísland er á jörðinni). 5600 km í þvermál eða á stærð við Ástralíu. Svæðið er nefnt eftir ástargyðju Babýlóníumanna.

Á Ishtar Terra eru fjórir stærstu fjallgarðar Venusar. Á austurhluta svæðisins eru Maxwellfjöllin en þau eru hæstu fjöll Venusar, ríflega 11 km há. Í norðri eru Freyjufjöll, Aknafjöll á vesturhlutanum og Danufjöll í suðri. Þessir fjallgarðar umlykja Lakshmihásléttuna. Halli landslagsins er milli 2 til 30 gráður og skorpan líkast til milli 10 til 30 km þykk.

Á Ishtar Terra eru nokkur eldfjöll sem nefnd eru eftir þekktum konum, til dæmis Kleópatra og Colette sem nefnt er eftir frönsku skáldkonunni Sidonie-Gabrielle Colette. Talning á gígum innan svæðisins bendir til þess að þar hafi jarðvirkni átt sér stað fyrir innan við tíu milljón árum.