![]() | Vetrarþríhyrningurinn |
Vetrarþríhyrningurinn er ímyndaður þríhyrningur sem þrjár áberandi bjartar og fallegar stjörnur mynda. Þetta eru þær Betelgás í stjörnumerkinu Óríon, Síríus í Stórahundi og Prókýon í Litlahundi.
Stjörnur Vetrarþríhyrningins eru allar meðal tíu skærustu stjarna á næturhimninum. Síríus er bjartasta fastastjarnan séð frá jörðinni og eru það einungis reikistjörnurnar Venus, Mars og Júpíter sem geta orðið bjartari en hún. Prókýon er í sjöunda sæti yfir björtustu stjörnurnar og Betelgás í því níunda. Síríus og Prókýon eru meðal nálægustu sólstjarnanna við sólina okkar og virðast því bjartar vegna nálægðar við okkur. Betelgás er aftur á móti á meðal stærstu sólstjarna sem þekkjast. Hún er um þúsund sinnum breiðari en sólin og mun einn daginn enda ævi sína sem sprengistjarna. Þar sem hún er í um 600 ljósára fjarlægð mun lífið á jörðinni líklega ekki verða fyrir áhrifum frá sprengingunni.
| Stjarna | Stjörnumerki | Sýndarbirtustig | Ljósafl (sól = 1) | Litrófsgerð | Fjarlægð (ljósár) |
| Síríus | Stórihundur | -1,46 | 25 | A1 | 9 |
| Prókýon | Litlihundur | 0,34 | 8 | F5 | 11 |
| Betelgás | Óríon | 0,58 | 105.000 | M2 | 640 |
Vetrarþríhyrningurinn er fremur lágt á lofti yfir Íslandi á kvöldin um miðjan vetur (frá desember og fram í mars).
Á suðurhveli jarðar er þríhyrningurinn „á hvolfi“ og tiltölulega hátt á lofti á sumrin. Þar er vetrarþríhyrningurinn því kallaður sumarþríhyrningurinn.
![]() |
| Vetrarþríhyrningurinn og Óríon. Myndin er úr Starry Night forritinu. |
Sjá nánar: Stjörnumerkin
Sjá nánar: Himinhvelfingin
Sjá nánar: Leiðarmerki
Sjá nánar: Sumarþríhyrningurinn
Heimildir:
- Vefsíða um Björtustu stjörnurnar á Wikipediu (skoðuð 27. janúar 2010).
- Vefsíða um Betelgás á Wikipediu (skoðuð 27. janúar 2010).
- Vefsíða um Síríus á Wikipediu (skoðuð 27. janúar 2010).
- Vefsíða um Prókýon á Wikipediu (skoðuð 27. janúar 2010).



