Athugaðu, opna í nýjum glugga. Prenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

Viltu komast í stjörnuskoðun?

Á hverjum vetri óskar fjöldi fólks og hópa eftir að skoða stjörnurnar með aðstoð Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness og Stjörnufræðivefsins. Við bjóðum alla að sjálfsögðu hjartanlega velkomna hvenær sem er, af því gefnu að það sjáist til stjarnanna.

Einstaklingar
Ekki er krafist gjalds þegar einstaklingar koma í stjörnuskoðun með okkur. Greiðsla er umsemjanleg ef fólk vill endilega greiða okkur fyrir það sem við höfum svo gaman af. Það er ekki verra. Við förum reglulega í stjörnuskoðun, stundum í Valhúsaskóla, þar sem Stjörnuskoðunarfélagið hefur aðsetur, en mun oftar eitthvert út fyrir bæinn.

Allir sem koma með okkur í stjörnuskoðun fá að kíkja í gegnum sjónauka og stutta leiðsögn um himinninn. Best er að fylgjast með því hvenær við förum á spjallsvæði Stjörnuskoðunarfélagsins (korkur.astro.is).

Einnig er hægt að senda póst á ssfs [hjá] astro.is.

Skólar, hópar og fyrirtæki
Þegar um hópa er að ræða er venjulega greitt fyrir stjörnuskoðunina því kalla þarf nokkra félasmenn á staðinn. Þar sem öll vinna er unnin af sjálfboðaliðum rennur allt fé sem safnast í framtíðaraðstöðusjóð Stjörnuskoðunarfélagsins. Verðið er háð stærð hóps en umsemjanlegt í flestum tilvikum.

Í turninum í Valhúsaskóla er stærsti sjónauki landsins en við reynum einnig að sýna himininn í minni sjónauka fyrir utan skólann.

Í gegnum tíðina hafa grunn- og framhaldsskólar nýtt sér þetta og heimsótt okkur en einnig starfsmannafélög fyrirtækja og stofnana.

Ef þú hefur áhuga á að koma í stjörnuskoðun, skaltu senda fyrirspurn á ssfs [hjá] astro.is.

=== 

Ég á sjónauka en kann ekkert á hann. Getið þið hjálpað mér?
Ef þú býrð svo vel að eiga stjörnusjónauka er lang best að skrá sig á stjörnuskoðunarnámskeið Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness og Stjörnufræðivefsins. Nánari upplýsingar er að finna hér. Á námskeiðinu er farið yfir allt sem viðkemur stjörnuskoðun og verkleg kennsla á sjónauka er innifalin í stjörnuskoðunarkvöldi með kennurum námskeiðsins.